Í dag 29. september varð Arnar Geir 2. ára og héldum við upp á afmælið hans.
Arnar Geir málaði sér kórónu og skreytti hana. Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og
hann blés á kertin tvö. Eftir sönginn bauð hann öllum á Hólakoti upp á ávexti úr afmælisávaxtakörfunni.
Við óskum Arnari Geir og fjölskyldu innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Hólakoti.