Sími: 460 4950
Í gær 9.október héldum við upp á 4. ára afmæli hennar Antoníu Guðrúnar. Í tilefni dagsins setti hún upp glæsilegu kórónuna sína sem hún skreitti sjálf, blés á kertin 4, gaf afmælisávexti og nemendur og kennarar sungu fyrir hana. Í útiveru flaggaði hún síðan íslenska fánanum. Við í Krílakoti óskum Antoníu og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með daginn.