Aníta 5 ára

Aníta 5 ára

Aníta hélt upp á 5 ára afmælið sitt í dag. Hún byrjaði daginn á því að flagga, bjó til afmæliskórónu og bauð Hólakotsbörnum ávexti í ávaxtastund. Við sungum afmælissönginn fyrir hana og svo skemmtilega vildi til að Karíus og Baktus voru í heimsókn í leikskólanum (leiksýning) og tóku þeir einnig lagið fyrir afmælisbarnið. Aníta var þjónn í hádeginu.

Við á Krílakoti óskum Anítu og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með daginn