Í dag þann 25. ágúst varð Amelia 3 ára og héldum við upp á daginn hennar hér í Krílakoti í dag.
Amelia málaði á kórónuna sína og við flögguðum íslenska fánanum henni til heiðurs.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og eftir
sönginn bauð hún öllum á Hólakoti upp á ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Ameliu og fjölskyldu hennar til hamingju með daginn.
Kveðja frá öllum í Krílakoti.