Amanda Líf varð 3 ára þann 6. júlí og var haldið upp á afmælið hennar þann dag. Hún byrjaði daginn á því að búa sér til kórónu, fara út og flagga, bauð öllum upp á ávexti og svo var hún þjónn dagsins. Allir sungu svo fyrir hana í tilefni dagsins. Við óskum henni til hamingju með afmælið frá öllum á Hólakoti.