Alexander Ýmir 1 árs

Alexander Ýmir 1 árs

 

Í dag héldum við upp á 1 árs afmælið hans Alexanders Ýmis en hann átti afmæli á Nýjarsdag 1. janúar.

Alexander Ýmir málaði á kórónuna sína.

Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn, hann hefur stækkað í nótt og þetta er afmæliskveðja.

Eftir sönginn fengu allir sér ávexti úr ávaxtakörfunni.

Við óskum Alexander Ými og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn. 

Kveðja frá öllum í Krílakoti.