Alexander Már 3. ára

Alexander Már 3. ára

Á föstudaginn héldum við upp á 3. ára afmælið hans Alexanders Más. Hann átti afmæli laugardaginn 3. október. Það fyrsta sem hann gerði var að setja upp kórónuna sem hann var búinn að búa sér til. Síðan fór hann út og flaggaði og bauð öllum upp á ávexti. Í ávaxtastundinni sungu allir afmælissönginn fyrir hann í tilefni dagsins. Einnig var hann þjónn dagsins. Við óskum honum til hamingju með daginn frá öllum á Skakkalandi.