Komið sæl
Í dag héldum við uppá tveggja ára afmælið hans Adríels Inga, en hann átti afmæli 18. júlí síðastliðinn.
Adríel Ingi málaði á kórónuna sína.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn, hann hefur stækkað í nótt og þetta er afmæliskveðja.
Eftir sönginn fengu allir sér ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við flögguðum að sjálfsögðu í tilefni dagsins.
Við óskum Adríel Inga og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn.
Kveðja frá öllum í Krílakoti