31 árs Afmæli Krílakots

31 árs Afmæli Krílakots

Í morgun héldum við upp á afmæli Krílakots. Börn á Skakklandi og Hólakoti komu saman úti í nýju lautinni ofan við sandkassan og sungum þar nokkur lög í tilefni dagsins. Einnig fengum við afhenta gjöf frá foreldrafélaginu sem Erna Þórey (móðir Völu Katrínar) sýndi krökkunum en það voru stórir Lego kubbar. Síðan fóru allir inn og gæddu sér á pylsum og Trópí sem foreldrafélagið bauð upp á. Við Þökkum afa Völu Katrínar (Vigni) og foreldrum Jakubs (Kornelia og Mariusz) kærlega fyrir hjálpina.