Útlánamet í Bókasafninu í febrúar.
Til hamingju íbúar í Dalvíkurbyggð!!!!
Nú í febrúarmánuði var enn slegið útlánamet hjá Bókasafninu. Lánaðar voru út 1121 titill, sem er meira en áður hefur lánast á einum mánuði. September og október hafa yfirleitt verið bestu mánuðirnir og fóru einnig yfir 1000 útlán í fyrsta skipti í sögu safnsins 2006. En febrúar með sína 28 daga sló þeim við.