Eins og þið vitið er sumarið komið. Hitinn hefur hækkað síðustu daga og næstu dagar eiga að vera með heitari dögum, sem koma hér á Norðurlandi. Sumarkiljurnar eru líka komnar í bókasafnið og bíða eftir að fá að fara með í sumarfríið. Það koma nýjar kiljur nærri vikulega, einnig eigum við mikið úrval af ferðabókum, sem gaman er að grípa með sér á ferðum innanlands.