Bókasafnið verður opið kl. 12 - 17 á Fiskidaginn. Við verðum með markað í Bergi þar sem við seljum gamlar afskráðar bækur og tímarit á kr. 50 - 500. Saga Dalvíkur á kr. 1000 kr. heftið. DVD- með tónleikum Fiskidagsins 2014 á kr. 3000. o.fl. Það er ekki posi á staðnum svo við bendum fólki að verða sér úti um reiðufé. Allur ágóði rennur til bókasafnsins sem þarf á tekjum að halda eftir að árgjöld voru lögð af.