Nú leitum við að einstakling sem hefur áhuga á því að starfa í fjölbreyttu og menningarlegu umhverfi. Um er að ræða 90% stöðu sem dreyfist að mestu á bókasafn Dalvíkurbyggðar og héraðsskjalasafn Svarfdæla auk tilfallandi verkefna í Menningarhúsinu Bergi. Vinnutíminn er frá 10.00-17.00 virka daga en að auki býðst að taka helgarvaktir á bókasafni.
Umsækjandi þarf að hafa náð 18 ára aldri og æskilegt er að hann hafi stúdentspróf eða aðra sambærilega menntun.
Hæfnikröfur
Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf í byrjun september eða samkvæmt samkomulagi. Laun og launakjör eru í samræmi við kjarasamning Sambands íslenskra sveitafélaga og KJALAR.
Umsóknarfrestur er til 30. ágúst nk.
Sótt er um starfið í gegnum Íbúagátt Dalvíkurbyggðar - Mín dalvíkurbyggð (min.dalvikurbyggd.is). Ásamt umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, rökstuðningur fyrir hæfni í starfið og stutt persónuleg kynning á umsækjanda.
Allar frekari upplýsingar veitir Björk Hólm, forstöðumaður safna og Menningarhússins Bergs í síma 460-4931 eða á netfangið bjork@dalvikurbyggd.is