Börn á aldrinum 6-12 ára geta nú tekið þátt í að velja bestu barnabók liðins árs. Hver lesandi má velja 3 bækur. Úrslitin verða kynnt við hátíðlega athöfn 15. maí í aðalsafni Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15. Tvær bækur verða verðlaunaðar, ein frumsamin íslensk og önnur þýdd. Hægt er að taka þátt í bókasafninu í Bergi eða á skólabókasafninu til 20. apríl. Tveir heppnir þátttakendur verða dregnir út og hreppa bókagjafir.