Í tilefni af bókasafnsdeginum í gær var meðal annars haldin bókmenntagetraun. Mörgum þótti getraunin þung og settu það fyrir sig við ráðningu hennar. Einn miði stóð þó uppi sem sigurvegari eins og alltaf er í getraunum. Miðinn var merktur Klemenzi Gunnarssyni og Margréti Víkingsdóttur. Fengu þau smáglaðning í verðlaun. Lausn getraunarinnar er þessi:
1. Karitas - án titils Kristín María Baldursdóttir
2. Mýrin - Arnaldur Indriðason
3. Slóð fiðrildanna - Ólafur Jóhann Ólafsson
4. Íslandsklukkan - Halldór Laxess
5. Dalalíf - Guðrún frá Lundi
6. Hlustarinn - Ingibjörg Hjartardóttir
7. Sagan af Hjalta litla - Stefán Jónsson
8. Nonni og Selma - Brynhildur Þórarinsdóttir