Næsti hádegisfyrirlestur í Bergi verður fimmtudaginn 10. apríl kl. 12:15. Hann er helgaður 70 ára afmæli Leikfélags Dalvíkur. Sýndar verða ljósmyndir frá leiksýningum félagsins sem áhugahópur um gamlar ljósmyndir hefur unnið með í vetur á skjalasafninu og 4 félagar úr LD segja frá reynslu sinni af starfi í leikfélaginu. Þeir sem segja frá eru: Jóhann Antonsson, Lovísa María Sigurgeirsdóttir, Kristján Hjartarson og Kristján Guðmundsson. Allir eru velkomnir.
Bergi menningarhúsi | 620 Dalvík | Sími: 460-4930
Opnunartími:
Mán. - fös. 10:00-17:00
Lau. 13:00-16:00