Dalvíkurbyggð leitar að starfsmanni í 100 % starf sem skiptist niður á söfn Dalvíkurbyggðar, þ.e. bókasafn, héraðsskjalasafn og byggðasafn. Um er að ræða tímabundna ráðningu í allt að 11 mánuði. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Starfssvið
- Mótttaka, skráning, flokkun og frágangur safnkosts á bókasafni, héraðsskjalasafni og byggðasafni.
- Afgreiðsla á Bókasafni Dalvíkurbyggðar.
- Móttaka skólahópa og samstarf við leik- og grunnskóla byggðarlagsins.
- Skráning á safnkosti Byggðasafnsins Hvols í gagnagrunninn Sarp.
- Aðstoð við skipulagningu og aðkomu viðburða.
- Kynningarmál, aðallega í gegnum samfélagsmiðla.
- Önnur verkefni falin af forstöðumanni safna.
Hæfniskröfur
- Stúdentspróf eða önnur sambærileg menntun.
- Gott vald á íslenskri tungu, góð tungumálakunnátta og almenn tölvukunnátta.
- Frumkvæði, gott skipulag og sjálfstæð vinnubrögð.
- Góð þjónustulund og virðing í mannlegum samskiptum.
- Reynsla af bóka- og safnastörfum eða öðrum sambærilegum störfum er kostur.
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að senda umsókn á netfangið: bjork@dalvikurbyggd.is, merkt: „Atvinnuumsókn – starfsmaður safna“.
Ásamt umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, rökstuðningur fyrir hæfni í starfið og persónuleg kynning á umsækjanda.
Laun og launakjör eru í samræmi við kjarasamning Sambands íslenskra sveitafélaga og KJALAR.
Umsóknafrestur er til 20. janúar 2019
Frekari upplýsingar veitir: Björk Hólm Þorsteinsdóttir, forstöðumaður safna í Dalvíkurbyggð í síma: 460-4931 / 8483248 eða á netfanginu: bjork@dalvikurbyggd.is
Bergi menningarhúsi | 620 Dalvík | Sími: 460-4930
Opnunartími:
Mán. - fös. 10:00-17:00
Lau. 13:00-16:00