Rafbókasafnið er bókasafn á vefnum þar sem finna má fjölda raf- og hljóðbóka af öllu tagi, fyrir alla aldurshópa. Í rafbókasafninu eru glæpir og ástir, ævintýri og ævisögur, myndasögur og bækur og innhverfa íhugun, byltingar, tísku og mataræði.
Meginhluti efnisins er á ensku og í formi rafbóka, en hlutur hljóðbóka fer ört vaxandi, enda njóta þær sérlegra vinsælda. Vonir standa til að á þessu ári muni íslenskar raf- og hljóðbækur bætast í hópinn.
Rafbókasafnið er samstarfsverkefni Landskerfis Bókasafna hf. og Borgarbókasafns Reykjavíkur og hægt er að nálgast efnið í flestum tækjum svo sem í vafra í tölvum, spjaldtölvum og snjallsímum. Auk þess er efnið jafnframt aðgengilegt í gegnum sérstakt app, OverDrive sem finna má í App Store og Play Store.
Þannig geta lesendur notað hvert tækifæri til að lesa sínar bækur, í síma eða á spjaldtölvu, hvar sem er og hvenær sem er. Í raun þýðir þetta að lesendur hafa heilt bókasafn í vasanum. Rafbókasafnið er alltaf opið og þar eru engar sektir, því kerfið sér sjálft um að skila bókum þegar lánstími er útrunninn.
Slóðin á Rafbókasafnið er: rafbokasafnið.is
Það eina sem fólk þarf til að nálgast efni er gilt bókasafnsskírteini hjá Bókasafni Dalvíkurbyggðar. Við minnum á að allir íbúar Dalvíkurbyggðar geta fengið lánþegaskírteini sér að kostnaðarlausu. Ef einhver hefur glatað skírteininu sínu er hægt að fá nýtt kort fyrir litlar 500 krónur hjá okkur í Bergi.
Til þess að skrá sig á rafbókasafnið þarf að hafa gilt bókasafnskort með svokölluðu GE númeri. Strikamerkið er síðan notað til að skrá sig inn ásamt leyninúmeri.
Til að lesa/hlusta með nettengingu er farið á safnið í gegnum vefslóðina: rafbokasafnid.is
Til að lesa/hlusta án nettengingar þarf að:
- Sækja Libby app eða OverDrive app í App Store, Google Play eða Windows Store
- Velja Rafbókasafnið, finna okkar safn (Bókasafn Dalvíkurbyggðar) í „Add your card“ og skrá inn númer korts (strikamerki) og leyninúmer.
- Hlaða bókinni niður og lesa eða hlusta.
Lesbretti:
- Ef nota á lesbretti þarf að stofna Adoble ID- aðgang og hlaða niður Adoble Digital Editions forritinu.
- Hlaða bókinni niður og færa á lesbrettið.
- Engöngu hægt með lesbrettum sem styðja e-Pub formið.
- Kindle lesbretti virka ekki NEMA kindle Fire.
Rafbókasafnið í hnotskurn – gripið saman í nokkra punkta
Ef þið hafið einhverjar spurningar hvetjum við ykkur eindregið til að hringja til okkar eða senda fyrirspurn á bjork@dalvikurbyggd.is og við munum gera okkar allra besta til að aðstoða ykkur!
Bergi menningarhúsi | 620 Dalvík | Sími: 460-4930
Opnunartími:
Mán. - fös. 10:00-17:00
Lau. 13:00-16:00