Við Árskógarskóla er laust til umsóknar 50% starf skólaliða frá 13. ágúst 2019. Í skólanum eru 40 börn frá 9 mánaða aldri til og með miðstigi grunnskóla. Árskógarskóli er staðsettur við þjóðveginn, í Árskógi, 12 km frá Dalvík og 34 km frá Akureyri.
Nánar um skólann á heimasíðu: http://www.dalvikurbyggd.is/arskogarskoli/
Starfið felst aðallega í þrifum og ræstingu í skóla og félagsheimili sem og lítilsháttar innkaupum. Starfsmaðurinn þarf að vera sveigjanlegur og tilbúinn að vinna með nemendum og starfsfólki að tilfallandi verkefnum.
Leitað er að aðila sem:
Vinnutíminn er 9-13 eða eftir samkomulagi. Æskilegt er að sá sem er ráðinn geti hafið störf 13. ágúst.
Allar nánari upplýsingar gefur Jónína Garðarsdóttir skólastjóri
í síma 460-4971, 899-4933 eða jonina.gardars@dalvikurbyggd.is.
Senda skal umsókn og ferilskrá á netfangið jonina.gardars@dalvikurbyggd.is og verður móttaka umsókna staðfest.
Umsóknarfrestur er til og með 23. maí 2019
Árskógi, 621 Dalvíkurbyggð Sími: 460 4970 |
Skólinn er opinn frá Skólastjóri: Friðrik Arnarson |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 460-4973; 460-4970 / arskogarskoli@dalvikurbyggd.is