Vinir Sjonna með barnatónleika í Bergi

Á morgun laugardaginn 28. maí klukkan 13.30 verða Vinir Sjonna með barnatónleika í Bergi menningarhúsi, aðgangur ókeypis.

Skemmtunin er í boði Starfsmannafélagsins Fjörfisks hjá frystihúsi Samherja á Dalvík, Promens, Fiskmiðlunarinnar salka og Norðurstrandar.

Strákarnir ætla að leika nokkur lög og gefa svo öllum krökkum á svæðinu plaköt og áritanir og svo er hægt að fá myndir af sér með drengjunum.

Síðan er upplagt að skella sér á fótboltaleikinn á eftir Dalvík/Reynir - Árborg.

Athugasemdir