Verðlaunaafhending í jólaskreytingarsamkeppni

Á morgun, föstudaginn 10. desember, fer fram verðlaunaafhending í árlegri jólaskreytingarsamkeppni Dalvíkurbyggðar.

Verðlaunaafhendingin fer fram í menningarhúsinu Bergi kl. 17:00. Allir velkomnir.

Veitt verða þrenn verðlaun og auk þess þrjár viðurkenningar. Valnefnd fór í skoðunarferð um allt sveitarfélagið 7. desember síðastliðinn og var úr vöndu að velja, því mikið er af fallegum ljósum og skreytingum. En niðurstaðan er fengin og verður gerð kunn á morgun.

Athugasemdir