Tónlistarhátíðin BERGMÁL - Lokatónleikar

Tónlistarhátíðin BERGMÁL - Lokatónleikar

BERGMÁL - Galatónleikar

Fimmtu og jafnframt síðustu tónleikar tónlistarhátíðarinnar BERGMÁLS fara fram fimmtudaginn 5. ágúst kl. 20:00 í menningarhúsinu Bergi.

Efnisskrá tónleikanna má nálgast hér.

Aðgangseyrir: kr. 1.500, ókeypis fyrir 16 ára og yngri.

Í forsvari fyrir hátíðina eru Kristján Karl Bragason píanóleikari og Dalvíkingur, Hafdís Vigfúsdóttir flautuleikari og Grímur Helgason klarinettuleikari. Aðrir tónlistarmenn sem koma fram eru Björk Níelsdóttir sópran, Hugi Jónsson barýtón, Gróa Margrét Valdimarsdóttir fiðluleikari, Júlía Mogensen sellóleikari og Sólborg Valdimarsdóttir píanóleikari. Auk þeirra verða sérstakir gestir á lokatónleikum hátíðarinnar, stórtenórarnir Bragi Bergþórsson og Eyjólfur Eyjólfsson.

Hátíðin samanstendur af fimm tónleikum með fjölbreyttri og veglegri dagskrá kammertónlistar og sönglaga.

Tónlistarhátíðin Bergmál fer fram í Bergi og í Dalvíkurkirkju dagana 2.—5. ágúst, alls 5 tónleikar, þar af 4 í Bergi. Efnisskrá hverra tónleika og nánari upplýsingar um tónleikana og tónlistarfólkið má nálgast á vefsíðu Bergs: www.dalvik.is/menningarhus  og á http://www.dalvik.is/frettir/3912/Tonlistarhatidin-BERGMAL-i-Bergi-2.-5.agust/default.aspx

Athugasemdir