Hlini Gíslasson, tenór frá Hofsá heldur tónleika í menningarhúsinu Bergi fimmtudaginn 23. mars kl. 20:30
Undirleikari er Páll Barna Szabó. Gestasöngvarar eru Andrea Lucas alt söngkona og kórstjóri frá Þýskalandi, Steinar Steingrímsson tenór og Felix Jósafatsson bassi. Hlini hefur lagt stund á klassískan söng í Tónlistarskóla Akureyrar síðastliðin ár hjá Michael Jóni Clark og syngur í Artic Opera sönghópnum. Á efnisskránni verða ýmis klassísk lög, íslensk og erlend.
Aðgangseyrir er 2.500 kr.
Goðabraut | 620 Dalvík | Sími: 460-4930 | netfang: berg@dalvikurbyggd.is
Athugasemdir