Tónleikar - Lögin hans Jóa Dan í Bergi 2. janúar

Tónleikarnir Lögin hans Jóa Dan, sem frestað var vegna veikinda 20. nóvember, verða haldnir sunnudaginn 2 janúar 2011 kl.16:00.

Forsala aðgöngumiða verður 29. og 30. desember milli klukkan 16 og 18 í Bergi- síminn er 8931177
Þeir sem ekki höfðu greitt miða, en pantað, eru beðnir að staðfesta.

Tónlistafélag Dalvíkur stendur fyrir tónleikunum í tilefni af útgáfu safndisks með upptökum sem til eru með söng Jóhanns Daníelssonar. Á tónleikunum verða flutt flest af þekktustu lögunum sem Jóhann flutti og eru á diskinum. Flytjendur eru Pétur Björnsson tenór, Jón Svavar Jósepsson bariton ásamt Karlakór Dalvíkur undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar. Undirleikari verður Daníel Þorsteinsson. Safndiskurinn verður til sölu á kr. 2.500.

Aðgangseyrir: kr. 2.500. Aðeins er hægt að greiða með reiðufé.

Athugasemdir