Tónleikar í Bergi

Tónleikar Grétu Guðnadóttur fiðluleikara og Ingunnar Hildar Hauksdóttur píanista
verða haldnir fimmtudaginn 6. janúar með kl. 17:00 í menningarhúsinu Bergi.

Tónleikarnir verða á vegum Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar.

Á efnisskrá verður fiðlukonsert í A-dúr eftir Mozart, Sónata
eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson og nokkur þjóðlög og variationir
eftir Helga Pálsson.

Þetta er afskaplega aðgengileg tónlist og góð upphitun fyrir
þrettánda brennu seinna um kvöldið.

Frítt inn.

Allir velkomnir.

Athugasemdir