Ég fjörugum fiskum með færinu næ
Þriðjudaginn 3. ágúst kl 19.30 opnar Gréta Arngrímsdóttir sýningu á þæfðum ullarfiskum, í menningarhúsinu Bergi. Sýningin ber yfirskriftina "Ég fjörugum fiskum með færinu næ".
og verður hún opin Fiskidagsvikuna frá kl. 11:00 til kl 22:00.
Sýningin, sem ber yfirskriftina “Ég fjörugum fiskum með færinu næ”, stendur til miðvikudagsins 18. ágúst.
Fiskarnir bera allir nöfn úr textum Emiliönu Torrini.
Opnunarími sýningarinnar er sá sami og Kaffihússins í Bergi.
Goðabraut | 620 Dalvík | Sími: 460-4930 | netfang: berg@dalvikurbyggd.is
Athugasemdir