Samsýning Bergþórs Morthens og Paul Lajeunesse í salnum í Bergi

Næstkomandi föstudag, 8.júlí kl. 17:00, opnar í Bergi samsýning myndlistarmannanna Bergþórs Morthens og Paul Lajeunesse.

Bergþór Morthens (f. 1979) útskrifaðist frá Myndlistaskólanum á Akureyri árið 2004 og hefur síðan unnið ötullega að list sinni og haldið bæði einka- og samsýningar jafnt hér á landi sem erlendis.

Paul Lajeunesse (f. 1976) er bandarískur myndlistamaður sem dvaldi á Íslandi sem gestalistamaður SÍM og í Herhúsinu á Siglufirði árin 2007 til 2008. Á þeim tíma vann hann að landslagsmálverkum sem hann tók svo með sér aftur til Bandaríkjanna. Þar fullvann hann verkin og sýnir nú afraksturinn á Íslandi.

Þetta eru tveir myndlistamenn sem nálgast málverkið á mjög ólíkan hátt en tengjast samt að því leyti að þeir vinna á ákeðin hátt með sjálfsmyndir.

Bergþór málar portrett myndir unnar með blandaðri tækni bæði á striga og plötur, verkin eru ákveðin alkemía þar sem hann blandar saman ólíkum efnum og verður útkoman oft óvænt. Paul Lajeunesse málar hinsvegar landslag á mjög fínlegan og realískan hátt.

Athugasemdir