Færeyski listmálarinn Øssur Mohr opnar sýninguna Glæman av fjøllum eða ljósið frá
fjöllunum og sýnir í menningarhúsinu Bergi, í ágúst. Øssur byrjaði að mála á miðjum
níunda áratugnum og hefur haldið margar sýningar víða um Evrópu.
Þetta er hans önnur sýning hér á landi. Verkin eru olíumálverk og sækir hann innblástur
aðallega frá húsum og manneskjum.
Opnun sýningarinnar verður 7. ágúst kl. 17:00 - 20:00. Glæman av fjøllum stendur til 31. ágúst.
Sýningin er styrkt af Menningarráði Dalvíkurbyggðar, Samskipum, Menningarfélaginu Bergi,
Sparisjóði Svarfdæla og Höldi - Bílaleigu Akureyrar.
Goðabraut | 620 Dalvík | Sími: 460-4930 | netfang: berg@dalvikurbyggd.is
Athugasemdir