Opin tónlistaræfing í Bergi 14. júlí kl. 15

Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari og Sigríður Aðalsteinsdóttir söngkona bjóða gestum og gangandi að líta við á opinni tónlistaræfingu í salnum í Bergi, miðvikudaginn 14. júlí kl. 15:00. Þær eru að æfa fyrir tónleika sem haldnir verða í Fríkirkjunni í Reykjavík 22. júlí næstkomandi, sem bera yfirskriftina "Systur". Blönduð og fjölbreytt efnisskrá. Allir velkomnir.

Athugasemdir