Merki Bergs í LogoLounge

Merki Bergs í LogoLounge

Merkið fyrir Berg menningarhús hefur verið valið til birtingar í LogoLounge-bók sem kemur út 2011. LogoLounge eru vinsælar hönnunarbækur þar sem birt er úrval vöru- og fyrirtækismerkja hvers árs. www.logolounge.com

Höfundur merkisins er Þórhallur Kristjánsson, grafískur hönnuður, sem á og rekur stofuna Effekt.

Athugasemdir