Laugardaginn 18 febrúar kl. 15:00 verða tónleikar með frábærum listamönnum í Bergi.
Oddur Arnþór Jónsson, barítónsöngvari, og
Somi Kim píanóleikari flytja fjölbreytta dagskrá.
Oddur var útnefndur Bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum 2014 fyrir hlutverk sitt í Don Carlo. Hann var tilnefndur sem söngvari ársins 2014 og 2015 á Íslensku tónlistarverðlaununum fyrir hlutverk sín í Don Carlo, Rakaranum í Sevilla og Solomon á Kirkjulistahátíð.
Somi Kim býr og starfar í London eftir að hafa lokið námi við Royal Academy of Music í London. Hún hefur hlotið fjölmörg verðlaun á sínu sviði.
Á efnisskránni verða íslensk, þýsk, frönsk og rússnesk sönglög.
Miðar seldir við innganginn eða í síma 8689393.
Verð 3.000.- Frítt fyrir 18 ára og yngri.
Upplýsingar berg@dalvikurbyggd.is,
og facebook Menningarhúsið Berg
Goðabraut | 620 Dalvík | Sími: 460-4930 | netfang: berg@dalvikurbyggd.is
Athugasemdir