Jólatónleikar Tónlistarskólans í Bergi um helgina

Laugardaginn 11. desember og sunnudaginn 12. desember verða árlegir jólatónleikar Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar haldnir í menningarhúsinu Bergi. Flutt verða tónlistaratriði frá skólanum, flestir nemendur skólans munu koma fram. Alls verða þetta 6 tónleikar, sem fara allir fram í salnum í Bergi.

Dagskráin er sem hér segir:

Laugardaginn 11. desember: kl. 13:00, 14:00, 15:00 og 16:00

Sunnudaginn 12. desember: kl. 14:00 og 16:00

Allir velkomnir og frítt inn.

Athugasemdir