Jólamarkaður, tónlistaratriði og tónleikar í Bergi 5. desember

Það verður heilmikið um að vera í Bergi laugardaginn 5. desember.

Jólamarkaður verður frá kl. 13:00-16:00, en það verður hægt að kaupa handverk og gjafavöru eftir heimafólk. Athugið að ekki er tekið við greiðslukortum. T

Tónlistarskóli Dalvíkurbyggðar verður með tónlistaratriði frá kl. 13:00, 14:00 og 15:00 en það eru nemendur Helgu Bryndísar og Zsuzsanna sem spila.

Kl. 17:00 verða svo tónleikar með Áshildi Haraldsdóttur þverflautuleikara og Katie Elizabet Buckley hörpuleikara.

Jólasýningin verður opin og Kaffihúsið er opið frá kl.11:00-16:00

Athugasemdir