Jólamarkaður og tónlistaratriði í Bergi 12. desember

Það verður heilmikið um að vera í Bergi laugardaginn 12. desember.

Jólamarkaður verður frá kl. 13:00-16:00, en það verður hægt að kaupa handverk og gjafavöru eftir heimafólk. Athugið að ekki er tekið við greiðslukortum.

Tónlistarskóli Dalvíkurbyggðar verður með tónlistaratriði frá kl. 13:00, 14:00 og 15:00 en það eru nemendur Helga, Pál og Ave sem spila.

Jólasýningin verður opin og Kaffihúsið er opið frá kl.11:00-16:00

Athugasemdir