Jólamarkaður í Berginu

Laugardagana 5. og 12. desember er stefnt að því að jólamarkaður verði hluti af aðventudagskrá í menningarhúsinu Bergi.
Þeir sem eru að vinna handverk sem fellur að jólum, gjafir eða skraut, eru vinsamlega beðnir að skrá sig sem fyrst, en borðið kostar 1.000 kr.
Áhugasamir hafi samband við Margréti Víkingsdóttur í síma 460 4908 / 861 4908 eða á netfangið margretv@dalvik.is .

Athugasemdir