Jólamarkaður á aðventu í Bergi

Efnt verður til jólamarkaðar á aðventu í Bergi með vönduðu handverki og gjafavöru eftir heimafólk.

Um er að ræða laugardagseftirmiðdag 4. desember og laugardags- og sunnudagseftirmiðdag 11. og 12. desember.

Jólasöngvar verða í húsinu laugardaginn 4. desember og tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar 11. og 12. desember.

Á jólamarkaðnum verður hægt að stilla upp 8 - 12 borðum, engin matvæli eins og í fyrra.

Þeir sem hafa áhuga, vinsamlegast pantið borð hjá Guðrúnu fyrir 5. nóvember n.k. á netfangið: berg@dalvik.is eða í síma 460-4908, gsm: 861 4908.

Athugasemdir