Jazztríóið Jazz Ensemble Úngút heldur tónleika í Bergi menningarhúsi, fimmtudaginn 30. ágúst næstkomandi kl. 20:30.
Á efnisskrá jazztríósins eru sem fyrr íslensk þjóðlög og sönglög í splunkunýjum og spennandi útsetningum Peter Arnesen píanista og tónskálds. Tríóið er nýkomið úr ferð til Bandaríkjanna og Kanada og er nýr geisladiskur hópsins væntanlegur með haustinu.
Flytjendur eru:
Rósa Kristín Baldursdóttir, söngur
Einar Sigurðsson, kontrabassi
Peter Arnsen, píanó
www.ensemble-ungut.com inniheldur svo frekari upplýsingar
Goðabraut | 620 Dalvík | Sími: 460-4930 | netfang: berg@dalvikurbyggd.is
Athugasemdir