Hetjur Valhallar - Þór frumsýnd í Bergi

Hetjur Valhallar - Þór frumsýnd í Bergi

BergKvika tekur þátt í frumsýningu nýrrar íslenskrar teiknimyndar Hetjur Valhallar -Þór laugardaginn 15. og sunnudaginn 16. október kl. 14:00. Myndin verður sýnd í 2D. Myndin er leifð fyrir alla aldurshópa. Miðaverð er 1.000kr. og er miðasala við innganginn.

Aðalsöguhetja myndarinnar er hinn ungi Þór sem dreymir um frægð og frama á vígvellinum fjarri járnsmiðju móður sinnar. Sagan segir að hann sé sonur sjálfs Óðins, konungs guðanna og þess vegna trúa því allir að Óðinn muni vernda Þór og þorp hans fyrir jötnun og öðrum illum öflum. En á meðan Þór lætur sig dreyma um frægð og frama bruggar Hel drottning Undirheimanna ráð gegn mönnum og guðum. Á sama tíma fær Þór á ótrúlegan hátt upp í hendurnar kröftugasta vopn veraldar, hamarinn Mjölni. Þegar heimurinn er á heljarþröm þarf Þór að taka á honum stóra sínum og beisla krafta Mjölnis því örlög alls heimsins eru í þeirra höndum. Hetjur Valhallar er fyrsta íslenska teiknimyndin í fullri lengd og um leið fyrsta íslenska teiknimyndin í þrívídd. 

Viðamesta frumsýning Íslandssögunnar sýnd á yfir 11 stöðum og 24 bíósölum um land allt!

Reykjavík • Akranes • Ísafjörður • Laugar • Ólafsvík • Patreksfjörður
Sauðárkrókur • Seyðisfjörður • Keflavík • Dalvík • Akureyri

Leikstjóri: Óskar Jónasson
Handrit: Friðrik Erlingsson, Toby Genkel, Mark Hodkinson & Óskar Jónasson

Athugasemdir