Handverkssýning í Bergi í júlí

Nú stendur yfir handverkssýning í anddyri menningarhússins Bergs. Þar má sjá sýnishorn af vönduðu íslensku handverki sem unnið er í byggðarlaginu.

Sýningin stendur í 4 - 5 vikur.

Handverksfólk athugið að enn er pláss fyrir nokkra muni á sýninguna. Handverkinu er komið fyrir í glerskápum sem standa í anddyri Bergs. Aðeins er um litla muni að ræða sem passa í hólf skápanna. Þeir sem hafa áhuga á að setja muni á sýninguna hafi samband við Guðrúnu, netfang berg@dalvik.is .

Athugasemdir