Gönguvikur í máli og myndum

Í kvöld, fimmtudaginn 1. október,  kl. 20:30 munu Kristján Eldjárn og Anna Dóra Hermannsdóttir fara yfir gönguvikur sumarsins í máli og myndum í Bergi menningarhúsi. Þau munu segja frá göngunum, framkvæmdinni og sýna myndir og fl. Þetta er kjörið tækifæri fyrir þá sem tóku þátt að rifja upp skemmtilegar stundir úr göngum sumarsins og jafnvel að leggja eitthvað í púkkið fyrir gönguvikur næsta sumars.

Allir eru velkomnir og það er frítt inn.

www.dalvik.is/menningarhus


Athugasemdir