Fundarröð Öryrkjabandalags Íslands - 5. mars í Bergi

Fundaröð Öryrkjabandalags Íslands. Fatlað fólk á tímamótum. Eru mannréttindi virt?
Fundir á Norðurlandi föstudaginn 4. og 5. mars 2011

Húsavík 4. mars kl. 13 – 15.30
Dalvík 5. mars kl. 10.30 – 13
Akureyri 5. mars kl. 15 – 17.30

Yfirfærsla á þjónustu fyrir fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga fór fram um síðustu áramót. Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) heldur af því tilefni fræðslu- og umræðufundi víðs vegar um landið. Næstu fundir verða í í sal Framsýnar á Húsavík 4. mars kl. 13 – 15.30, í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík 5. mars kl. 10.30 - 13 og í Hofi á Akureyri 5. mars kl. 15 – 17.30

Efni funda:
1. Ný hugmyndafræði um fötlun og Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Helga Baldvinsd. Bjargardóttir - Fötlunarfræði HÍ
2. Þekkir þú réttindi þín? Hrefna K. Óskarsdóttir - ÖBÍ
3. Viðbrögð ÖBÍ vegna yfirfærslunnar. Guðmundur Magnússon - formaður ÖBÍ
4. Notendastýrð persónuleg aðstoð. Freyja Haraldsdóttir og Embla Ágústsdóttir- NPA miðstöðin
5. Fyrirhuguð Þekkingarmiðstöð Sjálfsbjargar. Ingibjörg Loftsdóttir- Sjálfsbjörg
6. Umræður og fyrirspurnir.

Fatlað fólk, aðstandendur, starfsfólk og stjórnendur sem vinna að málefnum fatlaðs fólks og aðrir sem áhuga hafa á málefninu eru velkomnir.

Mætum öll
 
Ekkert um okkur án okkar

Athugasemdir