Frönsk tónlist fyrir píanó og saxófón verður flutt í Bergi sunnudaginn 11. mars kl. 16:00 en flytjendurnir eru þeir Guido Baumer og Aladár Rácz.
Efnisskráin samanstendur af verkum sem eru samin undir áhrifum af impressíónisma eða tengjast honum. Áhrifa frá Austurlöndum gætir einnig í sumum verkanna en flutt verða verk eftir Claude Debussy, André Jolivet ofl.
Ókeypis er inná tónleikana og allir velkomnir.
Goðabraut | 620 Dalvík | Sími: 460-4930 | netfang: berg@dalvikurbyggd.is
Athugasemdir