Framkvæmdir á lóð Bergs menningarhúss

Nú eru hafnar framkvæmdir við lóð Bergs menningarhúss en til stendur að þökuleggja lóðina í kringum húsið ásamt þeim hluta lóðar Ráðhússins sem raskað var vegna framkvæmdanna. Einnig er búið að leggja ramp upp að húsinu þannig að gott aðgengi verður fyrir fatlaða. Í síðustu viku var pallur við húsið sunnanvert kláraður og er það skemmtileg viðbót við þetta annars glæsilega hús.

Formleg opnun á húsinu verður 5. ágúst næstkomandi og verður opnunardagskrá í húsinu miðvikudag, fimmtudag og föstudag. Á allra næstu dögum verður opnunardagskránni dreift í hús.

Athugasemdir