EYFI 50 - tónleikar í Bergi 6. apríl

EYFI 50 - tónleikar í Bergi 6. apríl

Þann 17. apríl n.k. verður tónlistarmaðurinn Eyjólfur Kristjánsson „Eyfi“ fimmtugur. Af því tilefni mun hann halda í mikla tónleikaferð og halda 50 tónleika víðsvegar um Ísland. Ferðin hefst 21. mars n.k.

Eyfi verður með tónleika í Menningarhúsinu Bergi miðvikudagskvöldið 6. apríl n.k. og er það í fyrsta sinn, sem Eyfi heimsækir Dalvíkinga í langan tíma. Eyfi fer yfir ferilinn og spjallar á léttu nótunum við tónleikagesti og öll hans bestu lög ( Álfheiður Björk, Nína, Ég lifi í draumi, Danska lagið, Góða ferð, Ástarævintýri(á Vetrarbraut), Dagar o.m.fl. ) munu hljóma þetta kvöld í Bergi.

Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 og er aðgangseyrir kr. 2.000. Miðasala fer fram við inngang sjálft tónleikakvöldið.

Athugasemdir