Efri hæð í Bergi tilbúin

Efri hæð í Bergi tilbúin

Efri hæðin í Bergi menningarhúsi hefur nú verið kláruð og er þar með búið að taka allt húsið í notkun. Á efri hæð er skrifstofa, fundarherbergi og aðstaða fyrir þá sem leigja salinn, svo sem tónlistarfólk og fl.

Hægt er að leigja fundarherbergið á efri hæðinni og kostar það samkvæmt gjaldskrá 5.000.- fyrir 2.-3.klst. fund. Tilvalið er að leigja fundarherbergið fyrir allt að 12 manna fundi en hægt er að fá kaffiveitingar hjá Kaffihúsinu í Bergi. Leiga á fundarherberginu fer fram á netfanginu berg@dalvik.is eða 861 4908 (Margrét)

 

 

 

 

 

 

Athugasemdir