Dómkórinn með tónleika í Bergi

Dómkórinn í Reykjavík verður á ferð í Svarfaðardal um helgina og heldur tónleika í menningarhúsinu Bergi á Dalvík kl. 16 á laugardag. Þar flytur kórinn þjóðlög, madrígala og fleiri smálög undir stjórn dómorganistans Kára Þormar. Að söng kórsins loknum syngja gestir hans úr Samkór Svarfdæla nokkur lög undir stjórn Mikaels Jóns Clarke og í lokin syngja kórarnir saman og fá þá liðsstyrk frá félögum úr Kór Dalvíkurkirkju sem Hlín Torfadóttir stjórnar. Allir eru velkomnir á tónleikana en aðgangseyri er mjög í hóf stillt, einungis 500 kr.

Athugasemdir