Collingwood og Einar Falur - ljósmyndasýning í Bergi

Fimmtudaginn 15. september kl. 16:00 opnar sýning á ljósmyndum Einars Fals Ingólfsson eftir verkum W.G. Collingwood. Ljósmyndaverkin eru unnin með hliðsjón af vatnslitamyndum, teikningum og ljósmyndum sem breski myndlistarmaðurinn og fornfræðingurinn William Gershom Collingwood málaði og tók af stöðum sem koma fyrir í Íslendingasögunum á tíu vikna ferðalagi um Ísland sumarið 1897. Sýningin er hluti af sýningunni Sögustaðir - í fótspor W.G. Collingwoods sem sett var upp í Þjóðminjasafni Íslands 2009-2010.

W.G. Collingwood kom til landsins til að mála myndir af stöðum sem koma fyrir í Íslendingasögunum og um leið skapaði hann merkar heimildir um íslenskan samtíma sinn. Í ljósmyndum Einars Fals verður til samtal þriggja tíma; samtíma áhorfandans í dag, samtíma Collingwoods árið 1897 og sögualdarinnar, sem Bretinn hyllti í myndverkum sínum.

Á sýningunni er úrval ljósmynda Einars Fals og endurgerðir af hluta þeirra rúmlega 300 verka W.G. Collingwood sem hann vann hér á landi og varðveitt eru í Þjóðminjasafni Íslands.

Sýningin stendur út september.

Athugasemdir