Bubbi á ferð um landið

Líkt og mörg undanfarin haust heldur Bubbi af stað með kassagítarinn og eru viðkomustaðirnir að þessu sinni 10 talsins. Mun hann sem fyrr leika bæði gamalt efni og nýtt auk þess að ræða við áhorfendur um málefni líðandi stundar. Bubbi gaf út geislaplötu fyrr í sumar sem hefur fengið frábæra dóma og selst gríðarlega vel. Tónleikaferðin dregur nafn sitt af titli plötunnar "ég trúi á þig"

Þann 30. september kl. 20:30 mun Bubbi spila í Bergi menningarhúsi á Dalvík.

Kaffihúsið verður með grænmetis- og kjúklinga crepes frá kl. 19:00-20:30. Tilvalið að mæta snemma, fá sér léttan kvöldverð og fara á skemmtilega tónleika.

Athugasemdir