Bókmenntakvöld í Bergi í kvöld

Í dag,  þriðjudaginn 6. desember kl. 20, verður bókmenntakvöldið, sem fresta þurfti í síðustu viku vegna óveðurs. Þar koma saman nokkrir aðilar og kynna nýútkomnar bækur, bæði höfundar og heimafólk. Við hvetjum fólk til að koma inn úr frostinu og eiga notalega stund í anddyri Bergs. Allir eru hjartanlega velkomnir.

Athugasemdir