Bókmenntakvöld í anddyri Bergs 30. nóvember

Þriðjudaginn 30. nóvember verður hið árlega bókmenntakvöld á vegum Bókasafns Dalvíkurbyggðar, þar sem fólk úr byggðarlaginu les úr nýjum bókum. Einnig kynna höfundar/þýðendur bækur sínar.
Lesið verður í anddyrir Bergs, lesturinn hefst kl. 20:30. Þar munu heimamenn lesa upp úr nýjum bókum og einnig kemur væntanlega a.m.k. einn höfundur og les úr bók sinni.

Lesarar kvöldsins eru:

Ingibjörg Hjartardóttir
Svanhildur Björgvinsdóttir
Örlygur Kristfinnsson
Guðný Ólafsdóttir
Pétur Björgvin Þorsteinsson
Hugrún Felixdóttir
Klemenz B. Gunnarsson

Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.

Athugasemdir